Útskriftarnemar 2003

Vefur útskriftarnema MA árið 2003

Fréttir

Myndir, myndir, myndir...

Ég vil einnig benda fólki á að hér á vinstri hönd undir tenglinum "myndir" eru komnar inn nokkar vel valdar sem ég gróf upp í myndaalbúmunum mínum.

Ef að þið lumið á skemmtilegum myndum megið þið endilega senda þær á mig á anna.arnadottir@kaupthing.com og ég skal henda þeim inn :)

Njótið vel...

- Anna Friðrika


Upphitunarpartý AB!

Jæja dömur mínar og herrar,

Líkt og þið ættuð öll að vera komin með á hreint þá ætlar AB bekkurinn ekki að láta sitt eftir liggja um næstu helgi og því er verður hitað upp fyrir óvissuferð á laugardagskvöldið með bekkjarpartýi! Ég mun henda inn nánari upplýsingum þegar nær dregur.

Þrátt fyrir að vera búin að ná í ykkur öll með krókaleiðum er sjálfsagt að við ræðum partýið hér á þessari fögru síðu. Hver veit nema við getum vakið öfund hinna bekkjanna og vonandi hvatt til fleiri hátíðarhalda þetta kvöld...en ég efast svo sem ekkert um að fleiri en AB-ingar opni sér afréttara á MA planinu kl. 14 á sunnudaginn ;)

Með mikilli tilhlökkun og von um góða mætingu,
Anna Friðrika


Mynd augnabliksins

img_1682.jpg
Nettó
Thule
Stefna

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning