Útskriftarnemar 2003

Vefur útskriftarnema MA árið 2003

Fréttir

...

Ekki nokkur séns að finna fyrirsögn á þessa færslu, snilld og taumlaus gleði koma helst upp í hugann. Unnið er að því að safna saman myndum sem munu birtast hér næstu daga.

Þangað til... náið úr ykkur þynkunni.


10 ára nefndin

Fulltrúar bekkjanna eru eftirfarandi fyrir hitting eftir fimm ár:

AB - Helga María Pétursdóttir
F - Karvel Steindór Pálmason
GH - Jóna Rún Daðadóttir
T - Ari Jón Arason
U - Egill Thoroddsen
X - Egill Örn Jónsson

5 ára nefndin þakkar fyrir sig og óskar 10 ára nefndinni til hamingju og velfarnaðar í framtíðinni.

Óvissuferð 15. júní

Sigurður klár í óvissuferð


Mæting: 14:00 á planinu hjá Menntaskólanum á Akureyri

Kostnaður: 4500 krónur á mann. 
Leggist inn á  0101-05-271355 kt:101182-4959

Búnaður:aukaföt frá toppi til táar, s.s. líka aukanærföt, nema þið ætlið ykkur að vera nærfatalaus um kvöldið sem er alveg frjálst, pinnahælapíur geta svo haft með sér aukaskó, ef þær vilja hæla sig upp fyrir kvöldið
- handklæði og sundföt
- haldapoka
- svo gæti komið sér vel að taka með teppi ef kalt verður í veðri, það er ekki nauðsynlegt, en gæti komið sér vel :)
- svo þurfiði að taka með ykkur þau drykkjarföng fyrir daginn 

Markmið: að skemmta sér vel

Þeir sem ekki hafa í hyggju að skemmta sér eru varaðir við að mæta, þeim gæti reynst orðið erfitt að sleppa við skemmtunina/gleðina sem mun ríkja í ferðinni.


Miðasala

Hér er hægt að panta miða á afmælishátíð MA stúdenta sem fram fer í Íþróttahöllinni á Akureyri 16. júní næstkomandi. Athugið að láta vita fyrir 10. júní ef hætt er við pöntunina. Hægt er að senda tölvupóst á bautinn@bautinn.is eða hringja í 462-1818 til að afpanta miða. Ef ekki er látið vita í tæka tíð verður rukkað fyrir miðana.

Miðarnir verða seldir í Höllinni 15. og 16. júní frá 13:00 til 17:00.

Þeir sem óska eftir grænmetisrétti í stað þess sem boðið er upp á af hefðbundna matseðlinum, eða hafa aðrar sérstakar óskir, t.d. vegna ofnæmis, eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við Guðmund Karl á Bautanum í síma 462-1818 eða 897-3818, eða með tölvupósti á netfangið gummi@bautinn.is.

MATSEÐILL


 

Fordrykkur
Kvöldroðinn

Forréttur - Perlur hafsins
Heitreyktur silungur með mangósósu,
hvítlauksristaður humarhali og
glóðaður skötuselur með kampavínsrjóma

Aðalréttur - Upp til fjalla
Lambaframhryggur í bjarma Norðurljósanna.
Ofnsteiktur lambaframhryggur kryddaður íslenskum jurtum borinn
fram með hasselback-kartöflum og fjallagrasasósu.

Desert - Fantasía
Súkkulaðiterta, vanillís, ávextir,
rjómatoppur og hindberjasósa



Mynd augnabliksins

Engin mynd fannst sem mynd augnabliksins
Nettó
Thule
Stefna

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning