Útskriftarnemar 2003

Vefur útskriftarnema MA árið 2003

Fréttir

Miðasala

Hér er hægt að panta miða á afmælishátíð MA stúdenta sem fram fer í Íþróttahöllinni á Akureyri 16. júní næstkomandi. Athugið að láta vita fyrir 10. júní ef hætt er við pöntunina. Hægt er að senda tölvupóst á bautinn@bautinn.is eða hringja í 462-1818 til að afpanta miða. Ef ekki er látið vita í tæka tíð verður rukkað fyrir miðana.

Miðarnir verða seldir í Höllinni 15. og 16. júní frá 13:00 til 17:00.

Þeir sem óska eftir grænmetisrétti í stað þess sem boðið er upp á af hefðbundna matseðlinum, eða hafa aðrar sérstakar óskir, t.d. vegna ofnæmis, eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við Guðmund Karl á Bautanum í síma 462-1818 eða 897-3818, eða með tölvupósti á netfangið gummi@bautinn.is.

MATSEÐILL


 

Fordrykkur
Kvöldroðinn

Forréttur - Perlur hafsins
Heitreyktur silungur með mangósósu,
hvítlauksristaður humarhali og
glóðaður skötuselur með kampavínsrjóma

Aðalréttur - Upp til fjalla
Lambaframhryggur í bjarma Norðurljósanna.
Ofnsteiktur lambaframhryggur kryddaður íslenskum jurtum borinn
fram með hasselback-kartöflum og fjallagrasasósu.

Desert - Fantasía
Súkkulaðiterta, vanillís, ávextir,
rjómatoppur og hindberjasósa




Mynd augnabliksins

img_0185.jpg
Nettó
Thule
Stefna

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning